í kastljósinu á þriðjudaginn var maður að nafni Dr. Tom Shakespeare hér hefur svipaðar skoðanir og ég...
Hugur okkar er flókið fyrirbæri
Hugsun okkar byggist á því hvernig við erum alin upp, lífsreynslu okkar auk margra annarra þátta sem spila inní, hugurinn einn og sér er svo sterkt fyrirbæri að það má líkja honum við vél sem bregst mismunandi við utanaðkomandi aðstæðum hann getur meira að segja gengið frá okkur.
Lætur okkur líða vel þegar aðstæður hjá okkur eru góðar og illa þegar við erum í umhverfi sem okkur líkar ekkert svo vel við eða eitthvað sem við þekkjum ekki eða höfum ekki reynslu af verðum við hrædd eða forvitinn.
Öll höfum við heyrt máltakið “það er erfitt að kenna gömlum hundi að sitja” þar er lýst því að því eldri sem við verðum því erfiðara er fyrir suma að læra eitthvað nýtt svo sem á við þjóðfélagið sem er stöðugt að breytast.
Í skóla er okkur kennt að læra að lesa, skrifa, tungumál, trúarbrögð, stærfræði, og ýmislegt fleira sem síðan þróast með okkur er við eldumst og verðum reynslunni ríkari, sem endar með því að við miðlum af reynslunni til þeirra sem yngri eru.
Við setjum fólk í hópa eftir útliti, stærð, fatavali, skoðunum, tilfinningum, gjörðum og mörgu fleiru þar á meðal okkur sjálf.
Þess vegna var þessi vefur settur á laggirnar til að miðla til fólks á mannamáli og skilgreina hina ýmsu erfiðleika sem einstaklingar í þessu þjóðfélagi búa við. Þeir eru mismunandi á mismunandi stigum. Því við erum jafn mörg og við erum mismunandi. Þessvegna verðum við líka að læra um samfélagið og sjá samfélagið sem eina heild en ekki sem hópa sem við ekki tilheyrum.
Bjarki Birgisson | |